Blogg um sumarið 2009
Ég hef ekkert bloggað í sumar, eg er alveg miður mín... Ég ætla segja frá sumrinu í stórum dráttum bara ;)
Í byrjun sumarsins (eftir að hafa kvatt alla í Lorraine) fór ég í 2 vikna ferðalag með vinkonu úr skólanum (Fanny) við fórum í alpana á hótel þar sem var sko frááábært, þetta var Paradís ! Við gerðum svooo margt, t.d. í 2 heilsdags fjallgöngu í alpana 18 km. 2800m hæð 
hotelið
fjallganga
fórum í HYDROSPEED sem var örugglega með því skemmtilegasta sem ég hef gert ! þetta er soltið eins og riverrafting nema maður er einn og með kút og er alveg ofan í vatninu og flýtur niður árnar. (kikjiði bara á goodle, því ég náði engri mynd af því). annars gerðum við margt annað eins og AcroBranche(klifra og hoppa a milli trjáa í böndum) og svo líka oft á hjólabáta og synda í vatninu og líka svona Segl-Brim-bretti .. veit ekki alveg hvað það heitir en það var mjög gaman :D :D 
segl-brim-vind-bretti

Eftir 2 vikur í paradís var leiðinni haldið til Lugano í ítölsku sviss. Þar var ég í mánuð. Mjög rólegt og fínt að slaka á í rólegheitum. Var heima hjá Flavio og Nuriu og Pablo. Spilaði fótbolta þar með lidinu Rapid Lugano, það var mjög gaman, við spiluðum leiki um alla sviss þannig að ég náði að ferðast aðeins þótt ég hafi kannski ekkert mikið skoðað staðina. Spiluðum við Zurich stelpurnar þar eru svissmeistarar og helmingurinn af liðinu spila í sviss landsliðinu, það var gaaaman og erfitt reyndar líka að spila við svona alvöru lið, skemmtileg reynsla ;) 
Fc Rapid Lugano
Eftir 2 vikur í sviss kom mamma mín í 2 vikur !! það var rosa rosa gaman að sjá hana :D við höfðum það bara rólegt í góða veðrinu (30°) og í 4 daga fórum við til Italiu (Rimini) á ströndina ! MAMMA MIA það var æðisleeeeegt, alveg geggjað að fara í sjóinn og í sólbað á ströndinni. 
mamma og rún
heita miðjarðarhafið
Eitt kvöldið fóru ég, Nuria og Pablo á einn stórann skemmtistað (stærsta í norður Italiu) og það var alveg geeeeeeeeeðveikt, Baja eitthvað man ekki alveg, en hann var risa stór með 4 eða 5 tegundum af tónlist. Við vorum þar að dansa þangað til að það lokaði og á leiðinni heim löbbuðum við á ströndinni og váááááá það var æðiiii, kl 6 um morguninnlöbbuðum bara á tánum í vatninu og horfðum á sólarupprásina, þetta var sjón sem ég mun seint gleyma MYND Svo var hótelið læst þannig að við biðum aðeins þangað til það var opnað fyrir okkur :) Já þessir dagar þarna á Ítalíu voru sko alls ekki slæmir ! 



í sviss
Lugano
í sviss
jæja já, Helgina 4-6 september var haldið til Parísar, þar voru allir nýjir skiptinemar sem voru að fara í árs dvöld eða 6 mánuði. Og ég var þarna því ég er að fara aftur í 6 mánuði, eða svona eiginlega 5 reyndar. Eeeeen allavega það var mjög fínt, ég var sú eina sem talaði góða frönsku, þannig að allir öfunduðu mig, múhaha :D Helgin var bara eins og hin helgin sem var í Janúar, fórum í rútu um París og það var svo fyndið að sjá hlaupa um allt í rútunni að taka skrilljón myndir af öllu útum gluggana. Þetta var í 5 eða 6 skiptið sem ég fór til Parísar þannig að þetta var ekkert nýtt fyrir mig.
Sunnudagurinn var vaknað klukkan 5 og tekið rútu kl 6 alla leið niður til suð-austur frakklands þar sem fjölskyldurnar biðu. Við gátum ekki tekið rútu því við erum 40 bara á þessu svæði (í Lorraine vorum við 5) þannig að við erum alveg möörg núna, það er ein önnur íslensk stelpa sem er á þessu svæði þannig að ég mun sjá hana eitthvað yfir þessa mánuði sem ég verð hér.
Fjölskyldan mín er bara mjöög fín. Mamman og Pabbinn, mamman frekar róleg og pabbinn meira hress, svo er strákur 19 ára sem er bara um helgar því hann er í skóla í LYON, svo er ein 14 ára stelpa og svo er reyndar 17 ára stelpan í Argentínu í heilt ár þannig að ég mun ekkert sjá hana. Já svo er líka ein rosa sæt kisa :) Húsið er gamalt og risa stórt, á 3 hæðum og garðurinn RISA RISA stór, stærri en fótboltavöllur. Og þar eru allskonar tré og ávextir og grænmeti og þannig :) Svo er líka annað hús svona hálf opið með engum gluggum í garðinum en það var sko notað til að geyma dýrin í gamladaga þannig að það er bara svona geymslu pláss. Húsið er ekki staðsett eins og venjuleg hús í röð við götuna heldur er svona sér gamaldags vegur til að komast að húsinu, voða krúttlegt. Herbergið mitt er voða kósý, gott rúm og ágætispláss líka :) Útsýnið frá húsinu er æðislegt ! ég sé yfir allan bæinn Annoney, þar sem ég fer í skóla. Skólinn er stór og fínn, 1500 mans í skólanum. Við erum 6 AFS krakkar í skólanum en ég er sú eina sem verð á elsta árinu, það er ágætt. Hef eignast eina vinkonu jeijj, (afs) stelpa frá Sviss (Elena) hún er mjög fín, hún spilar fótbolta og líka "footbag" sem er sko algjör snilld og hún er að kenna mér það, kíkjiði á youtube á footbag. Þetta er sko íþrótt og það eru til heimsmeistarar í þessu. Maður er með litinn grjónapoka að halda á loft i takt við tónlist. Alveg briiiilljant :D 
herbergið mitt :-)
hin hliðin
kvöldmatur úti :)
Fjölskyldan fer oft í fjöllin á skíði og bretti þegar snjórinn kemur, og pabbanum finnst gaman að fara í Kletta klifur, (svona eins og á klifurvegg) oooo ég vona að ég fái að prófa það kannski með honum einhvern tímann ;)
Allavega, mér lýst bara mjöög vel á þetta :) Líka svo miiiiklu auðveldara núna þegar ég tala nú þegar frönskuna.
Jæja ég segji þetta gott, ég reyni að láta myndir inná facebook líka stöku sinnum...
Bless í bili, og ég reyni að láta ekki líða langt á milli blogga ;)
knús og kossar
Rún
ma vie en France
oki looksins blogg !!! 
seinustu vikur eru bunnar ad vera frabaerar !!
forum eina helgi til Parisar til hostbrodur okkar sem byr tar, og tad var alveg geeedveikt gaman. fengum glampandi sol alla helgina og hofdum tad rolegt og gott, ekkert of mikid turista tvaelingur a okkur, bara tjillad og haft tad kosy. vid vorum oft bara ad tvaelast um vid 2 og forum adeins ut a lifid a laugardagakvoldinu, a BARRIO LATINO haha ooo tad var svo gaman, 4 haedir og bara spaensk latinu tonlist og Irene thekkti audvitad oll login. en ja tetta var frekar gaman :D 


heehe franskur kall a kaffihusi

kaffihus i paris
svo for eg i beach-soccer einu sinni med stelpunum i fotboltanum! og va tad var gaman, tad var reyndar innandyra og tetta var bara eins og sparkvollur nema med sandi ! alveg geggjad, og eftir klukkutima tar er madur dauuuudur i fotunum tetta er svo faranlega erfitt :')
undanfarid hef eg bara verid ad klara skolann, og verid ad lifa venjulegu fronsku lifi. fara stundum til Metz(borgina) og Irene fekk ser gat i tunguna um daginn!! En annars hef eg eignast goda vini herna, og alveg otrulegt hversu goda vini er haegt ad eignast a adeins 5 manudum. 

med fotboltanum var mot i Luxemborg seinustu helgi, og VA tad var sko faranlega gaman !! stelpurnar i boltanum eru svo faranlega fyndnar, tegar vid vorum i bilnum a leidinni og ef tad voru einhverjir ad labba a gangstettinni ta opnudum vid gluggann og haegdum adeins og okkur og oskrudum alveg ogeslegt oskur og gafum svo i og folkinu bregdur svoo mikid, vaaa eg hef sjaldan hlegid jafn mikid. aeji tetta er kannski ekki fyndid ad lesa, tetta er svona *had to be there* moment. en ja motid, vid topudum i vitaspyrnu um ad spila um 1. saetid svo vid spiludum um 3. saetid og unnum tann leik 4-0 !! unnum svo bikar fyrir efnilegasta lidid a motinu :) og eg skoradi 2mork jeijj ! :]

ljoti buningarnir okkar

i skolanum ..
tad hefur verid mikil sol undanfarid, brann a oxlunum og AAATTTSSSS tad var svo vont 
Oo ja !! eg er buin ad smakka allskonar skrytinn mat her,
Snigla=ekkert brjalad godir, helt samt ad teir vaeru verri.
Heila ur svini eda kind man ekki= ogedsleeegt !! held tad hafi lika bara verid hugsunin um ad eg var ad borda heila sem gerdi bragdid ogedslegt, ja tad var eins og hlaup.
Svina innefli= tad var reyndar bara fint, gaeti alveg bordad tad aftur.
Andarkjot= ja tad var alltilagi, soltid eins og kjuklingur en samt ekki alveg.
annars lidur mer bara mjooog vel her uti, eg og ire erum mjog godar saman, og skemmtum okkur bara vel i litla sveitabaenum okkar.
Jaejaaa skolinn buin og eg komin i sumarfri, frekar sorglegt ad hugsa uti tad ad eg se ad fara hedan eftir 1 manud .. :/ held eg eigi alveg eftir ad sakna folksins her soltid. 
svo er Ire ad fara i naestu viku tvi mamma hennar kemur her og taer fara ferdast um evropu i 2 vikur tannig ad eg verd ein her a medan vinir minir eru i profum og Ire i burtu.
aefingasvaedid okkar
Fyrir naestu 6 manudina fer eg a annann stad i frakklandi, en eg er ekki komin med fjolskyldu svo eg veit ekki ennta hvert eg fer, en eg vona innilega ad eg fari eitthvert allt odruvisi en er her bara til ad profa eitthvad nytt :) annars fyla eg mig bara nokkud vel her i sveitinni med hestunum og beljunum fyrir aftan husid. 
Jaeja vona ad allt gangi vel heima !
Og ja !! vid erum ad fara flytja !! tar ad segja mamma og askell, tannig ad tegar eg kem heim verdum vid flutt i annad hus !! flyt i nyja aslandid :) tad verdur spennooooo !! 
Jaeja eg segji tetta gott i bili !!!!

KVEDJA RUN
bisous à tous !!
Vous me manquer beaucoup !
Bisous
ALPAR, SNIGLAR og PARIS !
Parísarferðin;
Fórum til Parísar í 1dag með ítölum sem voru í heimsókn í skólanum, það var geeeðveikt! Veðrið var æði. Við skoðuðum Luvre safnið og allt þetta Parísar-dót. Stoppuðum við effel-turninn og fengum 2 tíma til að rölta bara um, ég og Íre sátumst niður á grasinu fyrir framan og fórum í sólbað. Fyrir aftan okkur voru tveir strákar að leika sér eitthvað með bolta og voru þónokkuð mikið augnkonfekt, Íre heyrði að þeir töluðu spænsku svo við fórum að tala við þá og þeir töluðu ensku líka svo ég gat verið með :D þeir voru 18 og 19 frá suður ameríku og við fórum að spurja hvað þeir væru að gera hér og heyrðu þeir voru módel fyrir hönnuðinn Christian Dior!! haha þaaað fannst mér gaman :D þeir eru hér í mánuð og koma í öööllum tískublöðum og þar á meðal Vogue! Ó mæ god hvað okkur fannst þetta gaman haha :D vera fyrir framan effelturninn og lenda á spjalli við módel fyrir Christian Dior. Og nei þeir voru ekki að ljúga því við sáum myndir frá tískusýningum og allskonar ;)
lengst til hægri og lengst til vinstri ..
allavega, parís var æææði oog jú hættulegt líka, einhver uppdópaður strákur labbaði að mér og byrjaði að spjalla um að hann vildi elda fyrir mig mexikanskan mat ef ég vildi hitta hann um kvöldið. HAHA ég sagði auðvitað nei og hann fór að spurja allskonar, og ég laug að ég ætti ekki síma og vissi ekki hvað email var og eitthvað hehe
ég að tjilla hjá luvrinu
Páskafríið !
ALPARNIR VORU ÆÐI !!! fjölskyldan sem ég var hjá var bara ótrúlega fín, 3 stelpur og 2 af þeim ættleiddar frá Sri Lanka. Þau töluðu enga ensku þannig að eftir þessu viku var ég farin að tala mun betri frönsku. Ég fór meðal annars í Alpana á skíði, og í bæinn(borgina) Grenoble og allt svoo geggjað þarna. Fór eitt kvöldið í partý með einni af systrunum og HHHalló Hafnarfjörður aaallir að reykja sig í hel og fólk að reykja hass og eitthvað hahah.

Seinni vikan var fín líka, ferðuðumst mikið. Fórum á ströööndinaaaa ohh það var gaman :D bara rölta aðeins um. 
mont saint Michelle
Fórum svo líka eitt kvöldið með hóst bróðurnum útá einn skemmtistað, þaaað var geggjað. Varð líka miklu skemmtilegra því við máttum ekki segja Christiane að við fórum út, hún var farin að sofa hehe :p
Ég er að segja allt í risa stórum dráttum, því ég nenni ekki að lýsa hverju smáatriði hér..
Veðrið hér er búið að vera mjööög gott .. 15-20 stiga hiti og sól ! wúhú !
Áttum leik seinasta sunnudag fór 2-2 :)
Skólinn & Vinir ;
oooh það er svo erfitt að vera skiptinemi ! ég á sko fullt af vinum, en eins allir vita þá eru ekki öll dýrin í skóginum vinir... Ég veit aldrei hverjum ég á að vera með í skólanum, því sumir þola ekki þessa og aðrir þola ekki hina, og ég er greyjið litli skiptineminn sem reynir að vinir allra haha. En jújú það gengur ágætlega :p
Hei já ég borðaði SNIGLA í kvöldmatinn um daginn! Hahh jáá SNIGLA !! það var reyndar alls ekki slæmt, þetta er mest bragðið af sósunni sem fylgir með, snigillinn sjálfur er reyndar soltið slímí, en ekki vont bragð sko :p 
Næstu helgi er ég sko að fara í PARTÝ jeijjj hlakka svoo til :D þetta verður eitthvað stórt því þetta er í sal og læti ! :D
Já ég hef góðar fréttir að færa !! fyrir mig allavega...
Ég mun ekki koma heim þann 13 júlí eins og ætlað var, ég ætla lengja dvölina mína hér um hálft ár í viðbót því ég fæ bara ekki nóg af þessu landi... ég fer til annarra fjölskyldu, á öðrum stað í Frakklandi ég fæ að vita það í júlí eða eitthvað.
Ég mun sem sagt koma heim í janúar 2010 !!
Ef ykkur er sama ?
læt þetta gott heita í bili !!
saknaðar kveðjur; Rún sem finnst geðveikt hér :)
PS: getiði kvittað þið sem lesið bloggið :D mig langar að sjá hverjir eru að lesa bloggin mín hér ;)
2 mánuðir í frakklandi !!
Ég veit eiginlega ekki hvað þið viljið vita, en ég ætla blogga aðeins um skólann og hvað ég hef verið að bralla og hvað ég er að fara gera á næstunni ;)
Skólinn;
skólinn hér er .. öðruvísi. Það er bekkjarkerfi og ég er í bekk sem er á náttúrufræðibraut, sem er erfiðasta brautin. Ég er mjög ánægð í bekknum þótt ég eigi fleiri vini í hinum bekknum. bekkurinn er mjög samheldur og í öllum eyðum þá er bekkurinn eiginlega alltaf allur saman og allir voða vinir :D Þessi bekkur á að vera 1992 árgangur en það voru þónokkrir sem féllu í fyrra svo það eru margir 1991. Í skólanum mínum er semí GREASE stemning í fólkinu, strákarnir eru í leðurjökkum og gelið í hárinu sem klikkar ekki. Sérstaklega einn vinur minn sem heitir rosa erfiðu nafni sem líkist GREASE-gæja, og ég kalla hann alltaf bara Danny Zuko, og mér fannst alveg beeest þegar hann mætti með greiðu í rassvasanum í skólann um daginn HAHAHA, það var reyndar bara til að vera fyndinn því ég var nýbúin að tala um hvað hann líkist grease.
Ég byrja í skólanum kl 8 eða 9 og á föstudögum kl 10, og er til 5 alla daga nema á miðvikudögum til 12. í eyðum er ég bara með bekknum að spjalla eða spila billjard eða baby-foot :)
Kennslutímarnir eru líka frekar ólíkir íslenskum, t.d. í flensborg geturu farið á klósettið hvenær sem er og ef þú kemur of seint í tíma þá er það alltílagi, og þú getur skrópað 13 sinnum eða eitthvað en samt fengið mætingareininguna. Hér er þetta aaaðeins öðruvísi, það er borið mikil virðing gagnvart kennurum og það á alltaf þéra kennarana, ef þú mætir seint í tíma þá verður þú að hafa skriflega afsökun frá skrifstofunni afhverju þú kemur of seint, og þú skalt hugsa þér tvisvar um ef þú ætlar að skrópa í tíma því þá er sent bréf heim til þín og sagt að þú hafir ekki verið í skólanum þennan dag. það er eiginlega alltaf einhver heimavinna en ég er alltaf með sömu góðu afsökunina, ég segjist ekki skilja neitt :p sem er í flestum tilfellum rétt.
Allir hér í frakklandi heilsast með að kyssa á báðar kinnar, og þá meina ég í skólanum líka, þegar þú sérð einhvern sem þú þekkir þá er smellt tvem kossum á hvora kinnina, verður soltið þreytt þegar þú ert farin að þekkja marga.
Seinustu daga er ég bara búin að vera í skólanum og um helgarnar aðeins með vinum, núna þessa helgi fórum við með einni vinkonu sem heitir Clair og fórum á eitthvað kaffihús í Jarny og spjölluðum þar og höfðum það kósý, á laugardagskvöldið fórum við heim til Fannýjar (stelpan sem hangir mest með okkur) hún bauð okkur í mat, þetta var eitthvað víetnemískur matur alveg geeeeeeggjaður, hún er sko ættleidd frá víetnam. Svo spiluðum við WII og guitar hero og ég rústaði þeim í öllu..djók
Þar seinustu helgi eða þar þar, man ekki, var AFS-helgi.. hitti þar stelpur frá kína, canada, chíle, slóvakíu og noregi. Ooog égg lærði að segja „ég heiti Rún" á kínversku :D
Christiane (mamman) átti afmæli um daginn, og við ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt og bökuðum köku, og æj æj þá fór nú verr..... hún var hrikaleg ! við fengum uppskriftina frá stelpunni frá Chíle sem var á AFS-helginni því hún kom með svoleiðis köku sem var alveg geeeðveik. En okkar misheppnaðist aðeins, hún var öll hrá að innan og eitthvað. Eeen við reyndum þó, og Christiane var voða ánægð með okkur :p við gáfum henni blóm og mynd af okkur þrem í myndaramma;)
í seinustu viku var verkfall í skólanum mínum, samt bara einn dagur og ekki allir kennararnir fóru í verkfall, en ég var í einum tíma kl 8 og svo kemur rútan aldrei fyrr en kl 5 þannig að ég fór með „berlínar vinahópnum" á lítinn sparkvöll sem er hér og þar voru uþb 30 krakkar og við skiptum niður í mörg lið og spiluðum fótbolta í sólinni í allan dag, það var sko glaaampandi sól og engin ský, þetta var alveg geeeggjaður dagur :D
HEYRÐU JÁ ! það kom mynd af okkur í morgunblaðinu hér ! hópmynd af krökkunum sem fóru til Berlínar, man ekki alveg afhverju en ég sá eitthvað nefnt ísland og costa rica í greininni wúhú :D
Uuhhg, núúna koma sko pöddurnar og köngulærnar ! ojj, írene er eiginlega besti vinur paddana þar sem að hún býr í pöddu-landinu Costa Rica. Ég fríka út þegar ég sé könguló á gólfinu INNI HJA MER !! já nei takk fyrir ! og hún hlær bara að mér. Ég ætla sko að kaupa pöddu-eitur og sýna þessum pöddum hver ræður !
Seinasta laugardag fórum við, ég og Íre, til Verdun í sundlaugina þar. Fínasta laug, klefarnir skrýtnir samt :s það er bara einn klefi og strákar og stelpur saman.. svo eru bara litlir einsmanna klefar þar sem þú skiptir um föt. Svo er sameiginleg sturta, ég er svo vön að fara úr sundfötunum í sturtunni og eins gott ég gerði það ekki þarna, hahh þaað hefði samt verið fyndið !
Já það er nóg að gera framundan !!! núna á miðvikudaginn er ég að fara til Parísar í dagsferð með skólanum, því einhverjir ítaliskir krakkar eru að koma og við fáum að fylgja með FRÍTT wúhú ;) við munum fá einhvern frítíma í París og ég er skíthrædd um að rekast á PETER og vera rænd (þið sem hafið séð TAKEN skiljið hvað ég á við) ...
Heyrðu svo er það PASKAFRIIII eftir þessa viku og jaháá það er sko nóg að gera !! fyrstu vikuna er ég að fara í skiptiviku, það gengur þannig fyrir sér að eg fer í eina viku eitthvert annað í frakklandi og verð hjá annari fjölskyldu bara til að prófa að búa á öðrum stað. Og ég fer í einhvern bæ sem heitir La Buisse sem er rétt undir Ölpunum, þar er víst rooosa fallegt :D þannig að ég get ekki beeeeeeeeðið !! Fjölskyldan sem ég verð hjá er 5 manna. Hjón sem eiga 3 stelpur 14,17 og 18 ! og þessi 17 ára vill fara til Kanada sem skiptinemi. Ég mun fara á skíði í ÖLPUNUM ! ómæ god ég get ekki beðiiiið, og þeim finnst gaman að fara á hestbak.. ég sé til með það heehhh :p
seinni vikuna ætlar hóst bróðir okkar Stephan að fara með okkur eitthvert, man ekki alveg, en við erum að fara vera með honum í nokkra daga, það verður gaman því hann er mjög nettur ;) oooh það eru líka svo mörg partý í fríinu og það er búið að bjóða mér í nokkur af þeim og mig langar svoooo að fara en ég verð held ég í burtu þegar þau eru. En Fanný vinkona ætlar að halda partý fyrir okkur, og reyna hafa það þegar við komumst :D oh hún er svo góð við okkur :)
Ég hendi inn nokkrum myndum fyrir ykkur af því sem er búið að gerast seinustu vikur :)
Blessí bili ;*
-Rún í Frakklandi sem er illt í kinnunum eftir alla þessa kinna-kossa 
með baquette fyrir framan húsið :)
30 stiga hiti í garðinum !
Carnival - AFShelgin
ógeðslega kakan sem við bökuðum fyrir hana :p
afmælisgjöfin- máluðum ramman með naglalakki hehehe
ljóti skólinn hehe ein byggingin allavega
ég og íre með blómin sem við gáfum Christian
a bientot
-Rún 
Berlín Berlín Berlín
Á laugardaginum 7.mars héldum við smá uppá afmælid hennar Irene ;) eg og christian voum búnnar að skipuleggja þetta fyrir löngu og Ire vissi ekkert af því, ég bauð vinum okkar öllum og við borðuðum crépps og allskonar franskt eitthvað, og já hóstbróðir okkar Damien var í heimsókn þá og hann var búin að kaupa eitthvað áfengi fyrir stelpuna á 18.ára afmælinu, því 18.ára afmæli í Costa Rica eru alltaf stóóór afmæli. Þannig að við dönsuðum og höfðum það gaman í litla partýinu okkar :D það var skooo geeeeggjað, við færðum bara allt til í stofunni og höfðum það gaman. við erum ekkert búnnar að gera neitt svona alveg síðan við komum hingað til France þannig að við skemmtum okkur mjög vel :p
Rise And Shine Baby kl. 05:15 um morguninn í rútuna á leið til ÞYSKALANDS kl.06:00 ! með nokkrum pissustoppum inná milli, stoppuðum við almennilega kl:14:00 til að skoða útrýmingjabúðirnar HITLERS (Buchenwald). Þar sem fólkið var allt pínt og drepið og mér fannst frekar óþægjilegt að vera þarna. Standa og vita að akkurat þarna var hrúað saman líkum og brennt fólk og herbergi með krókum sem eg vildi ekki vita til hvers voru notaðir...
eins og í öllum rútuferðum bilaði rútan:)! Þegar nýja rútan kom keyrðum við ásamt nokkrum pissustoppum að hótelinu okkar í miðbæ Berlínar. Vorum komin um kl.22:00, jú rútuferðin var löng og þreytt en við vorum með ipod-hátalara og spiluðum tónlist og sungum og höfðum gaman:P Hótelið var sko geeeeeeðveikt, maður býst ekki við neinu rosalegu hóteli í ódýru skólaferðalagi. En þetta var sko alvöru ;) eftir að við komum okkur fyrir fórum við aðeins að labba og skoðuðum okkur um og fórum uppí þennan turn hér ...
flestir fóru heim eftir það en eg og aðrir 7 krakkar urðum eftir og leituðum af góðum stað til að fara á seinna í vikunni. ooooog í dag 8.mars eignaðist ég litla frænku :) !! Stefán bróðir og Agnes eignaðust litla stelpu sem mun heita Anna Guðrún. Wuhuuu gaman :D
Ég nenni ekki að skrifa frá allri ferðinni, og ég veit að þið nennið örugglega ekkert að lesa um hvert einasta smáatriði hér. Eg geri bara langa sögu stutta...
Alla daganna fórum við út kl 9 og komum heim kl 21:00 Gerðum svo margt á einum degi her eru nokkrir punktar:
* The Stasi Prison - ógeðslegt fanglesi 
*fórum á fleiri söfn um Berlín, og fengum svo soltið mikinn frjálsan tíma til að labba bara um í búðir eða á kaffihús eða gera það sem við vildum.
* Fórum á sýningu sem heitir „Blue Man Group" váá sko alveg geggjað hahha :D 3 karlar sem eru alveg málaðir bláir og eru að tromma með einhverjum neon vökva á trommunum og allt í neon þegar þeir tromma, freeeeekar nett :p (MYYYYND AF BLUE MAN GROUP)
* Skoðuðum eldgamla Kastala og kirkjur og allskonar svoleiðis. 
* Skoðuðum það sem var eftir af berlínar múrnum.
*Fórum í Olympic Stadium, þar sem ólympíu leikarnir voru haldnir einu sinni. 
*Borðuðum seinasta kvöldið á Hard Rock Café ;)
*Löbbuðum alveg fáranlega mikið alla dagana og lappirnar mínar voru bara dauðar.
*á einu safninu sá ég mann sem var í Peysu sem stóð ICELAND á.. haha ég var svo ánægð og fór og talaði við hann, þá hafði hann heimsótt ísland einhvern tímann hehe.
Við ferðuðumst um í lest allan daginn alla dagana :p og við vorum með ipod hátalarana með okkur alltaf, og spiluðum tónlist, svo kom lagið DaddyCool og við vorum að labba á milli lesta og allir störðu á okkur því við vorum sko öll 25 krakkar að dansa með tónlistinni og kennarinn fremst að að dansa líka haha vá þetta var svo fyndið, og ennþá fyndnara þegar verðirnir komu og sögðu okkur að hætta :p (það er til video af því, man ekki hver tók það samt)
Öll kvöldin fórum við eitthvað út, við krakkarnir. Kennarinn er svo ótrúlega nett og leyfði okkur að gera hvað sem við vildum. Eitt kvöldið ætluðum við (10 krakkar) að fara á staðinn sem við fundum fyrsta kvöldið en engin af þeim þorði að fara inn .. haha ég og íre ætluðum sko ekkert að láta það stoppa okkur og löbbuðum bara inn og þar var DJ og skjanna hvítir sófar uppvið veggina og dansgólf og diskóljós og allt voða flott. 2 min. Seinna komu hinir krakkarnir og sátust með okkur, þau fengu ser flest oll eitthvað að drekka, tónlistin þarna var svo góóóð og mig langaði svo mikið að fara dansa, en það var engin dansandi, fullt af fólki sem sat í sófunum en engin að dansa, ég dróg íre með mér útá gólfið og við byrjuðum að dansa, haha þaaaaað var sko gaman, bara tvær og allir á staðnum horfðu soltið á okkur fyrst en svo leið ekki nema 5mínútur þar til aaallir voru komnir að dansa með okkur, og þá meina ég líka hinir sem við þekktum ekkert :D oooo ég get ekki lýst því hvað þetta var gamaaaan :D 
seinasta kvöldið var gaman líka, fórum á einhvern annan stað sem var eiginlega veitingahús og við komust að því að það var hægt að syngja í KARIOKI :D haha ... eg hugsa að þið vitið öll hvað kemur næst... jújú ég, íre og ein önnur stelpa sem heitir Kelly (held ég) sungum I Love Rock And Roll og YMCA hahaha það var líka mjööög gaman :p
Þessi vika var sú skemmtilegasta hingað til verð ég að segja !
ooog ég eignaðist fleiri vini :p wúhú
Segjum þetta gott í bili !!
Saknaðarkveðjur Rún :) ;*
p.s. sjást myndirnar ?

Seinustu dagarinir í fríinu voru mjög fínir, sonur hennar christian kom í heimsókn (s.s. hóst bróðirinn) Stephan og kærastan hans Virginie, þau voru mjög fín og við vorum með þeim eiginlega alla daganna sem þau voru hér. Ágæt tilbreyting að fá einhvað ungt fólk í þetta hús :p ooog já ég á átti að elda eitthvað íslenskt fyrir þau og ég valdi bara ýsu í raspi, fannst það frekar íslenskt ;p reyndar var það þorskur því það var ekki til ýsa, þaað heppnaðist svonaaa ágætlega .. hehe fiskurinn var sko alltof saltur, veit ekki hvað ég gerði því ég notaði ekkert salt. Een ég reddaði því með einhverjari sósu sem eg gerði og svo kartöflur og salat með og jájá þetta reddaðist, þau fengu sér öll ábót sem þýðir að þetta hefur verið ætt :D Írene eldaði svo sinn mat sem heitir e‘ð Galla Pinto sem eru hrísgrjón og baunir og eitthvað, þokkalega gott bara

AFS-helgin: var í kringum 20.feb og já það var bara mjög gaman, hittum alla skiptinemana sem eru hér á
þessu svæði og svo annað fólk sem er að fara út núna bráðum og þau voru að spurja okkur útí allskonar skiptinema dót. Við töluðum bara um hvernig heimilin og skólinn er hjá hvor öðrum og það var ágætt;)
Skólinn: já ég er loksins byrjuð í skólanum aftur, ekki góður tími til að fara í tveggja vikna frí frá skóla.. een já skólinn er bara fínn, engin Flensborg samt ... kennararnir eru flestir allir mjög fínir, og ítölsku kennarinn (já ég er í ítölsku og nei ég kann ekkert í því) hann er mjög fínn og fyrir framan allan bekkinn spurði mig útí fríið mitt, og hvað ég gerði og eg sagðist hafa heimsótt þessa staði eins og Nancy og Verdun og fl. sem hafa einhverjar vooða sögur á bakvið sig og svo spurði hann mig úti þær, og ég vissi ekki neitt um það þannig að ég varð eins og skítur og vissi bara ekkert um þessa staði og hefði ég vitað eitthvað um þá þá kynni ég hvort er ekkert að segja það á frönsku. Já þetta var mjög vandræðanlegt
Annars er skólinn bara mjög fínn, skil ekkert rosa mikið en ég glósa allt sem er á töflunni og kannski einn daginn mun ég skilja hvað ég er að skrifa :p ég var í einhverjum tíma um daginn, man ekki hvaða, og stelpurnar fyrir framan mig voru alltaf að senda mér svona litla miða og spurðu allskonar spurningar eins og hvaða tungumál ég tala og einhvað fáranlegt hehe, veit ekki afhverju. Á miðvikudögum eru allir búnnir kl.12 og eftir skóla fóru ég, íre og alexis í lest til Metz, ooo það var svo gaman. glampandi sól og ég ooo var alveg ekta frönsk með frönska húfina (sem viktoria gaf mér í jóló) og svo keyptum við okkur Crépps sem er eitthvað franskt og röltuðum um í miðbænum í Metz :Dvið kveiktum næstum því í húsinu um daginn.. haha vorum að borða og gleymdum eldavélinni í gangi og það var kjúklingur á pönnunni, og eftir matinn töluðum við óvenjulengi þannig að þetta brann allt í tætlur og oojj reykur útum allt hús.
Skólinn er að fara til Berlínar í Þýskalandi í heila viku næsta laugardag og eg og íre ætlum með :D wúhú það verður gaman

Í gær fórum við í heimsókn til mömmu Christians, það var mjög fínt. Hún missti annan fótinn þegar hún var yngri eftir að vörubíll keyrði á hana, þannig að hún er hjólastól. Við borðuðum hádegismat hja henni og spjölluðum heillengi. Ooh enn og aftur eitthvað vandræðanlegt sem kemur fyrir mig... við vorum sem sagt að borða hádegismatinn hjá „ömmunni“ og já hún er gömul og það á alltaf að þéra hana, og ég var að passa mig á að gera ekkert vitlaust eins og að borða of hratt eða segja eitthvað sem mátti ekki eða eitthvað, og ég byrjaði að fá mér að drekka og mér svegldist alveg rosalega á .. ég andaði að mér vatninu, og ég hélt ég væri að deyja og hóstaði og hóstaði eins og brjálæðingur og augun mín öll rauð og ég hélt ég ætlaði að æla, ég hóstaði og hóstaði því mér kítlaði svo í hálsinn og allir fóru að horfa á mig og spurja hvort það væri ekki allt í lagi, og írene fór að gefa mér merki um að hætta núna, og ég gat ekkert hætt, ég var alveg að kafna..
hahaha en þetta reddaðist. ég var að koma inn eftir að hafa hoppað yfir götuna í bakaríið sem er ekki með neitt úrval nema tvær gerðir af brauði, Baquette(langt og mjótt brauð) og Crossant(eitthvað brauð sem er ógeðslega gott). Keypti mér eittstykki crossant í morgunmat og í dag erum við að fara keppa með liðinu mínu, sem ég man núna hvað heitir :p það heitir Amonville ;)
Ég er að kunna meta þetta te sem ég drekk hér á hverjum degi .. fyrst drakk ég það bara því hinir gerðu það, en mm núna dýrka ég þetta te


kveðjur frá frakklandi ! :*
-Rún
blogg nr.2
jæjaaaa :D
Seinustu helgi fóru ég,irene,mamman og alexi vinur okkar til Metz, christian fór eitthvað að versla á meðan við þrjú fórum að skoða í búðir. Roosa flott borg;) Svoo á sunnudeginum var æfingaleikur hjá liðinu mínu sem ég man ekki hvað heitir .. A eitthvað ville :p oog já við unnum hann 4-2 ;) wúhú þetta lið sem ég æfi með er alveg ágætt, það eru nokkrar sem eru mjög góðar, een við haukarnir myndum vinna þetta lið 5-1 myndi ég segja 8) og já haha búningarnir sem við spiluðum í voru sko bleikir og svartir hehe, það var soltið nett.
jáájá, þessi vika er bara búin að vera róleg, ég er að reyna ná tökum á þessu tungumáli. ég er örugglega orðin heimsmeistari í að leita í orðabók :p Í þessu tveggja vikna fríi þá vinnur mamman bara til 1 á daginn. Á morgnanna(ef það er ekki æfing sama dag) fer ég og írene útað hlaupa, maður er alltaf að hlaupa i endalausa hringi hérna því þetta er svo lítill bær, og svo gera þetta styrktar prógram. þann 11.febrúar kom pakki frá póstinum heim ! og já það var til mín, ég bað moms um að senda mér eitthvað dót, takk mamma:) og í pakkanum fylgdi meðal annars búðingur, haha ætla hafa hann í dessert þegar ég á að elda íslenska matinn í næstu viku, og svo íslensk uppskriftabók ;)
12.febrúar:
fórum að heimsækja systur hennar „mömmu". Eða nei ég og íre byrjuðum daginn á því að baka HAHA! Við ákváðum að gera brauðbollur með uppskrift úr eldhúsbókinni sem mamma sendi út, allt hepnaðist voða vel, neema við gleymdum að setja þurrger í það, og aallt ónýtt.. þetta var bara ógeðslegt, svo smakkaði Christian og greyjið hún þurfti að ljúga að okkur að henni fynndist þetta gott, æjæj. Een já við keyrðum í klukkutíma að húsinu hjá systur Christian og VÁÁ flottt hús, það er mjótt og langt á fjórum hæðum, og allt ekta franskt, allt í litlu smádóti, eldgömlum húsgögnum og veggfóðrið allt mynstrað og allt tipptopp. Væææri maður til í að búa þarna ! Á leiðinni heim fór bensín ljósið að blikka í bílnum, og þá fór Christian að segja að bensínið væri miklu ódýrari í Lúxemborg, og þar sem lúxemborg var bara í 15 mínútna fjarlægð þá keyrðum við þangað og tókum bensín og skoðuðum okkur aðeins um. svo keyrðum við líkaa í gegnum Belgíu, svona í leiðinni :p 3 lönd á einum degi ! ekki slæmt 
13.febrúar:
ég og íre fórum með alexis og pabba hans í einhvern bæ (rétt hjá Metz) þar voru eeendalaust mikið af búðum.. ég keypti mér símakort með frönsku númeri, og með númerinu fylgdi frír sími með HAHA.. alveg ágætis símí. símkort og sími á 5 evrur ;) við skoðuðum okkur um og fórum í búðir og eitthvað :) svo var æfing um kvöldið, í öllum snjónum :p það er soltið mikill snjór hér, en samt mikil sól líka.
14.febrúar:
oooo þetta var geggjaður dagur! Laugardagar eru „taka til dagar" þá rygsugum við og þurrkum af og og eitthvað. Það var ekkert svo geggjað, en eeftir hádegismat í sólinni og snjónum fórum við til frænku hennar og frænda í bæ sem heitir VERDUN .. hann er vooða merkilegur með einhvern múr í kringum bæinn og við lærðum allskonar um Verdun sem ég ætla ekki að drepa ykkur úr leiðindum með :) En ég tók fullt af myndum og þær koma inn núna á eftir ;) HÚSIÐ !! vá þetta er krúttlegasta hús sem ég hef á ævi minni séð ! inni hjá þeim er eitthvað gult þema, það er allt gult eða appelsínugult eða hvítt. þau eru systkyni sem búa þarna, hafa aldrei átt börn en eiga riiiisa garð með fuullt af dýrum. Inni hjá þeim er kanína sem hoppar bara um og svo köttur. Útí garði eru tvær geitur, nokkrar kanínur og hænsnabú og fullt af eplatrjám og plómutré og rabbararar og allskonar! Haha Zach (karlinn) fer alltaf útað labba með geiturnar, eins og hunda hehe. Garðurinn er sko riiisa stór, eins og hálfur fótboltavöllur, með fullt af gönguleiðum og litlum húsum(skúrar) með dýrum inní. Þau systkynin ferðast mjöög mikið. Zach hefur ferðast til 40-50 landa, allir hlutir í húsinu þeirra hafa einhverja sögu á bakvið sig. ooo þau voru svoo krúttleg og sæt og góð við okkur, þau fóru með okkur um allt í Verdun og sögðu okkur frá öllu, og sögðust ætla fara með okkur einhverntíman til Parísar! Ég er strax orðin spennt. ééég væri sko til í að búa þarna hjá þeim! Fara út að labba með geitur og eitthvað haha :D
15.febrúar:
lögðum af stað kl.11 í heimsókn til ættingja sem búa rétt hjá Nancy sem er klukkutíma í burtu. Við borðuðum hádegismat hjá þeim, þau hjónin eiga svo stráka, 17 og 14 ára. Þeir eiga nettasta herbergi í heimi, það er sko billjard borð og allt inni hjá þeim. Og veggurinn á klóstinu heima hjá þeim er svo nett haha ég tók mynd af því :p við spiluðum franskt spil sem heitir Tapoo við strákana sem var þannig að þú færð spjald með orði og átt að láta manneskjuna geta orðið án þess að nona bannorðin á spjaldinu, t.d. ef orðið er París þá máttu ekki segja frakkland, höfuðborð og effellturn, og JÁ það var erfitt en samt gaman :D jájá þessi fjölskylda var mjög skemmtileg og hress og fínt að fara eitthvað og hitta annað fólk líka;) eftir mat, svona um 3 leitið fórum við til NANCY, sem er borg. Við löbbuðum um og skoðuðum borgina, hún er gömul og öll úr gulli og risa kirkjum. og enn og aftur lærðum við fullt um þessa borg sem ég nenni ekki að skrifa hér. eeeeeeen ég tók fullt af myndum :D
Maturinn hér er rosa skrýtinn, eðaa öðruvísi.. Þau borða snigla og froskalappir :s ég hef ekki ennþá smakkað það, een það kemur að því.. hún eldar voða fínan mat og oftast er hann eitthvað franskur, sem ég hef ekki smakkað áður eins og um daginn var Graskerasúpa, heh það var soltið fyndið. Og svo líka „pâtè lorraine" sem er einhver franskur réttur, og fullt meira sem er bara nokkuð gott;)
Næstu helgi er AFS-helgi þá förum við eitthvað og gistum eina helgi .. veit ekkert meira um það :)
SET INN MYNDIR NÚNA !!!! :D:D:D:D
Hjálp ...
getur einhver sagt mér hvernig á að láta myndir í bloggið !!
Kveðja frá france,
Rúún :D
BLOGGBLOGGBLOGG GOGOGOGOGOGO
KOMUNÁMSKEIÐIÐ: var bara mjög gaman, vorum bara að læra reglurnar og þannig, eiginlega allt sem ég var búin að læra á afs námskeiðinu á íslandi J á laugardeginum fórum við í rútu til Parísar að skoða effiell turninn oog notra dame og löbbuðum aðeins um J bara mjög gaman, og SKÍTKALT MAÐUR ! . VÁ, eitt vandræðanlegt ! á föstudagskvöldið þá fórum við útí garðinn fyrir aftan hótelið í smá bolta, og ég sparkaði boltanum óvart beint í bakið á einum leiðbeinanda(kennara eða eitthvað) og hún missti andan og var einhvað að leggjast á jörðina, ég bara SHITT og ALLIR horfðu á mig (erum sko 50 og eitthvað) og ég hjálpaði henni upp og allt í góðu og ég sagði fyrirgefðu svona 5000 sinnum og alltigóðu :p
LESTIN&HEIMILIÐ: Ég og Íréne sem býr með mér, þurftum að vakna kl 5 á sunnudagsmorguninn til að fara í lestina heim 8) sváfum aðeins í lestinni sem tók 1 og halfantíma, ooog komum svo til Metz, þar fórum við út og Christiane (mamman) tók á móti okkur :) hún talaði eitthvað á frönsku og ég skildi ekki neitt. Húsin hér í þessum bæ eru öll eins eiginlega, svona tveggja hæða mjó og klesst uppvið hvort annað, smá gamaldags og kósý :) herbergið mitt og soltið stórt, og risa gluggi útá götu (getið séð það á myndunum). Í hádegismat borðum við alltaf heitan rétt oftast kjöt, svo er borðað osta eftir það og ávöxt eftir það, og te eftir það hehe.. íréne talar meiri frönsku en ég, þannig að þær eru stundum að spjalla soltið og ég kinka bara kolli og skil svona meiri hlutan bara. í kvöldmat komu 8 manns í mat, 4 krakkar sem verða í sama skóla og við, þetta er 800 manna skóli (svipað og flensborg) og hann er risa stór í mörgum byggingum og ég rata bara ekki neitt. Í matarboðinu borðuðum við og töluðum svo í 3 tíma, ég var eiginlega aftur svöng eftir það. En venjulega, þegar við erum bara þrjár að borða þá erum við við matarborðið í svona klukkutíma eða e-ð .. een já svo bara beint að sofa, eða nei reyndar gáfu við henni einhverjar gjafir frá íslandi, hún var voða ánægð, oog svo var smá misskilningur hehe, þegar ég gaf henni prjónaða vettlingana, þá sagði ég að konur heima á íslandi prjóna svona vettlinga og hún spurði mig hvort að amma mín hafi prjónað þá, og ég skildi það ekki og sagði bara Oui (já) og ég var að fatta núna hvað hún sagði, hehe þannig að VELGERT amma ;) flottir vettlingar sem þú prjónaðir, hún var mjög ánægð með þá ! haha svo kom smá snjór um nóttina, og í costa rica kemur aldrei snjór, og Íréne var að spurja svo skrýtnar spurninga eins og hvað á maður að gera þegar það er snjór á bílrúðunni? Og hvað gerist þegar hann bráðnar, og hvort það verður bara allt útí flóðum á götunum og e'ð rugl hehe.
SKÓLINN: ómæ hvað ég var stressuð að fara í skólann. Ég og Írene vöknum alltaf sjálfar í skólann því Christiane mætir kl 6 í vinnuna, þannig að við vöknuðum korter í 7 og borðuðum croissant, held það sé skrifað svona, og eitthvað múslí.. og svo kom Audrey, sem var í matarboðinu, hún fór með okkur það sem bussinn kemur og fer með okkur í skólann kl. half 8. Skólinn er já eins og ég sagði, gamall og í mörgum byggingum. Krakkarnir í mínum bekk eru mjög næs, og buðu mer með sér allt sem þau fóru, (hadegismat og eitthvað). Kennaranir, kunna enga ensku og kunna heldur ekki að segja nafnið mitt :´) Maturinn í skólanum, tjaa, ekki góður en samt svona allt í lagi, það finnt eiginlega engum hann góður. Kennslutímarnir voru soltið lengi að líða því ég skildi bara ekki neitt, sérstaklega fyrstu 2 dagana, en þetta komur alltsaman mjög hratt. Een ég var bara eitthvað að reyna þýða orð og reyna komast að því um hvað þau voru að tala.. það var ágætt :) Ensku tímar eru fínir, þá skil ég allt, ég var reyndar látinn standa fremst og segja frá mér og landinu hehe, og svo spurðu þau spurninga oog það var í svona halftíma eða e'ð. svo var það rútan heim kl. 5 og var frekar þreytt, það verður soltið þreytandi að skilja ekkert allan daginn. Jú þau kunna aðeins ensku, en það er eins og að tala ensku við ellen .. verra en það :p
ÆFING: við keyrðum í sirka hálftíma á æfingu, ég og írene fórum báðar á æfingu (írene er markmaður í fóbó). ég bjóst auðvitað ekki við að þetta lið yrði eitthvað rudda lið. En þetta er held ég nokkuð gott lið. Þær eru 36 sem æfa, reyndar voru bara 10 á þessari æfingu því snjór og kuldi er víst vont veður hér :s , en já þjálfararnir eru 3 og eru mjög góðir og ekkert smá fyndnir. Þetta félag, eða stelpu boltinn er í þriðja sæti í öllu héraðinu Lorraine, og í fyrsta sæti á sínu svæði í héraðinu. Æfingarnar eru í 2 tíma ooog já þetta er bara mjög gaman, allar að kalla eitthvað og ég skil ekki neitt, hehe en já þetta kemur :p
SKÍÐADAGUR: að fara uppí fjöllin var GEÐVEIKT, fórum með rútunni kl. 6 um morguninn, keyrðum í 2 tíma og lögðum af stað heim half 6 um kvöldið, algjör snilld ! skólinn var nú þegar búinn að leigja bara skíði, svo það var ekkert í boði að fara á snjóbretti, fyrir þá sem áttu ekki. en það var bara alltígóðu. Ég var ekki búin að fara á skíði í 4 ár eða e'ð og það var soltið skrýtið fyrst, een svo kom í ljós að ég hef engu gleymt 8) Skíðasvæðið er riiiiiiiiiiisa stórt, það voru að minnsta kosti 3 stólalyftur og skrilljón diskalyftur, ég týndist alveg þarna. Útsýnið var geeeeeeeðveikt, bara tré útum allt, og fjöll allstaðar og alveg logn og ég var bara lovin'it. Ooog auðvitað þurfti ég að brjóta stafinn minn :s heheh ég flækti hann i stólalyftunni og hann brotnaði í tvennt, hehe ég reddaði þessu bara:p Fólkið hér er ótrúlega opið og allir að spurja hvort við viljum ekki gera e-ð með þeim í fríinu sem verður næsta mánudag (í 2 vikur). Þannig að þeeetta er ágætt :D
Svo er einn strákur sem var í matarboðinu hér, Alex held ég ?, að bjóða mér og írene í party í næstu viku, svo það verður spennandi að sjá hvernig frönsk partý eru 8)
Anywhooo.. Ég er farin að skilja smá.. een aðeins erfiðara að tala :p
Ég er komin í tveggja vikna frí nuna ! wuuhuuuuu ! er að fara í METZ á eftir að skoða aðeins um :) það verður gaman ;)
Bless í bili frá Frakklandi :)
kveðja Rún sem er ástangin af frakklandi ! saaaknaðar kveðjur
-Rún
helluuuu
okokok
eg er loksins komin i tolvu ...
er i skolanum nuna og med usb kubb med allt bloggid sem eg aetladi ad copya yfir hingad ... eeen nei, tolvan her i skolanum er med odruvisi WORD og eg tarf ad fara heim og savea bloggid sem e'd annad :( OOHHH ... aetla ad posta bloggid a mrg !! eg lofa aad reyna gera tad :)
een svona sma urdrattur....
-komunamskeidid i paris var bara geggjaad, skodudum paris og e'd,
-baerinn er pinkulitill, og husid og litid en samt kosy... konan og fin, gomul en samt fin :)
-skolinn er risa stor i morgum byggingum, folkid her er otrulega naes .. VA TETTA LYKLABORD ER ALLT ODRUVISI TAD ER ALLT A VITLAUSUM STAD!!!
-forum i skola,skidaferdalag i gaer .. mjoog gaman :)
-Irene sem byr med mer er mjog fin
-fotboltinn er bara mjog godur, gaman ad aefa med teim
- eg skil ekki neitt, i timum serstaklega, en tetta er allt ad koma .. erum ad fara i tveggja vikna fri nuna a manudaginn :)
EG REYNINREYNIREYNI EINS OG EG GET AD KOMA BLOGGINU A MRG !!!!!!!!!!! ?
aetla reyna ad setja myndir nuna !! :)
sakna ykkar allraaaaaaaaaaaaaaaa
kvedjur fra frakklandi :*
fyrsta bloggið !
Jæjaaaa ég heiti Rún og verð með þessa síðu og reyni að blogga fyrir ykkur svona vikulega á meðan ég dvel sem skiptinemi í Frakklandi í hálft ár 
Það eru bara 18 dagar í að ég taki á loft ! sem sagt 30. janúar og ómæ hvað ég hlakka til !! 
Ég er nýkomin af undirbúnings námskeiði hjá AFS með öllum hinum skiptinemunum sem eru að fara út á svipuðum tíma og ég. Það var mjög fínt á þessu námskeiði, lærði fullt um landið og kynntist fullt af fínu fólki 
oooog reyndar soltið síðan een, ég er komin með familíu úti og hún er ekkert svooo stór. þetta er ein kona sem á uppkomin börn sem eru flutt að heiman. hún býr í nýlegu einbýlishúsi og ætlar að hýsa tvo skiptinema mig og aðra chick frá Costa Rica held að þetta verði bara mjög sweet ! ;)
heyrðu segjum það í bili
blogga þegar nær dregur !
-Rún Frakklandsfari

